Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt

Aðgát skal höfð í nærveru sálar

27.10.2008 14:46:46 / sirrysif

Segja löngu seinna frá því...

Hér koma nokkrar myndir frá Ítalíu. Ég er enn ekki búin að setja þær allar inn. Hef ekki beint tíma til að vera að bíða eftir Facebook þessa dagana. En hér er dómkirkjan í Mílanó, Andy og Ketill og ótrúlega stóra og glæsilega aðal-lestarstöðin í Mílanó. (Byggð á tímum fasismans sagði Andy og hnussaði.)

Ég var annars að koma úr frábærlega skemmtilegum enskutíma. Átti að koma með einhverja hugmynd um hvað ég myndi vilja skrifa term paper um (25 bls. ritgerð í stað prófs) og fékk godkendt að nota Fjallgönguna eftir Tómas Guðmundsson (mitt all time favorite) á móti einhverju gömlu ensku. Snilld. Þetta er masterskúrs svo ég upplifi mig oft mjög vitlausa og illa lesna í þessum hóp. En þeim fannst Tómas frábær og veltu ljóðinu fyrir sér í rúman klukkutíma. Bentu á hluti sem erfitt er að sjá þegar maður skilur orðin á blaðinu og gátu rakið uppruna orða sem ég hef aldrei velt fyrir mér. Það er auðvelt að sjá ef orð eiga rætur í ensku eða dönsku. Það er annað að þekkja latínu og grísku líka.... Svo þetta var frábær tími. Ég fékk fullt af hugmyndum og hugleiðingum fyrir ritgerðina mína. 

Ég kvíði því alveg að þurfa að fara að vera í milljón kúrsum næsta vetur með hellings viðveru. Mér finnst þannig nám svo leiðinlegt. Ég vil heldur lesa helling heima og hitta svo lítinn hóp einu sinni í viku í 3 klst og hafa virkilega tíma til að ræða það sem maður er nýbúinn að lesa. 




Ég er með mikla heimþrá þessa dagana. Ég á sem betur fer bara svo ótrúlega gott fólk alls staðar að það heldur mér gangandi. Fyrir utan alla sem eru heima hef ég Írisi og Valdimar hérna. Svo ekki sé nú talað um vinnuna mína. Það er verið að fara að breyta aðeins, færa mig yfir í annað hús. Svo nú hef ég ekki það mikið að gera í gamla húsinu en fæ samt að vera þar til 1.nóv. Að geta bara sest niður og borðað góðan (á sunnudögum) mat með fólkinu mínu er næstum eins og að vera komin heim. Gamalt fólk að rífast. Svo huggulegt. 

Haust í Danaveldi þýðir rigning. Ég hef búið bæði í Reykjavík og Glasgow svo ég er vön. 
Veriðisobarabless.

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.10.2008 06:41:26 / sirrysif

As you place the "Don't Disturb" sign on your door...

Amma og Hrönn komust heilar heim frá Barcelona. Rétt í tíma til að sjá og heyra nýjasta íbúann á Flugumýri hljóta nafnið sitt. Matthildur. Það er fallegt nafn. Ég óska henni til hamingju með það. 

Ég ætla að flytja útí sveit í janúar.

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.10.2008 10:50:37 / sirrysif

Kalda Kaupinhavn

Ég verð að skrifa svo hann afi minn hafi eitthvað að lesa... amma er stungin af til Barcelona með Hrönsu frænku. Ofuramma? Ójá!



Hér er mynd af okkur síðan í Tivoli í sumar. Ég átti alltaf eftir að setja inn síðustu myndirnar síðan hún var hérna. Ætli ég komist ekki í að henda alveg helling inn um helgina. Núna verð ég að halda áfram að skrifa ritgerð sem ég þarf að skila svona fljótlega. Vildi bara segja ykkur að ég hefði komist heil heim. 

"Heim" eins og það stendur. Ég á náttúrulega hvergi heima. Ég ætlaði varla að trúa því að ég væri að fara að fljúga til Danmerkur í þriðja sinn á þessu ári. Finnst heil eilífð síðan ég fór frá Íslandi 18.maí. Ég segi betur frá langbesta deginum á Ítalíu þegar ég verð búin að setja myndirnar inn en í örfáum orðum hitti ég tvær ítalskar ömmur. Ömmu Andy's og systur hennar. Það var æði. Verst að það var næstsíðasti dagurinn svo það í bland við að hitta svona yndislegar ömmur varð til þess að ég fékk heiftarlega heimþrá og hélt ég myndi kafna úr söknuði á leiðinni til baka til Mílanó. Sem betur fer var myrkur og allir aðrir töluðu svo hátt að það tók enginn eftir því að ég skældi og skældi. Það er ekkert hægt að gera þegar maður fæ heimþrá nema gráta það frá sér. Manni er bara illt og verður að fá að vera það í friði. 

Á þriðjudaginn kom svo dulítið uppá og staðan í dag er sú að ég er heimilislaus frá 1.febrúar. Sambýliskona mín sagðist vera að hugleiða að fara að búa ein og tók því eitthvað öfugt að ég sagðist vel skilja að hún vildi það. Hún er búin að búa í þessari pínulitlu holu í næstum tvö ár held ég. Meinti bara að ég skildi vel að hana langaði í meira pláss og meira einkalíf. EN, ég finn mér eitthvað annað eða flyt útí sveit. Nú er ég búin að prófa þetta og hef komist að því að ég er ekki borgarbarn. Ég er sveitastelpa sem finnst of gaman að fara í leikhús og á söfn til að geta búið á síðasta bænum í dalnum. Ég ætla að flytja í danska sveit sem er nógu nálægt til að ég geti tekið lestina í skólann. Það er nýja planið.

Búið.

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 17:02:13 / sirrysif

Roma - Amor

Eg er i Rom.
Falleg borg med oendanlega mikid af gomlum byggingum. Sogulegum byggingum sem manni finnst half oraunverulegt ad labba um. Coloseum er eins og ad vera i odrum heimi. Vatikanid er fyrirbaeri utaf fyrir sig. Gardar, styttur, kirkjur, gotur.... eg veit ekki hvad er ekki til herna sidan fyrir krist.

Nu getur verid ad thetta yndislega ofnaemistoflugufusky sem eg svif um a hafi ahrif a upplifun mina her. (Gerir thad reyndar alveg pottthett) EN mer finnst Italir hafa selt turismanum sal sina. Pafinn aetti ad skammast sin. Allt snyst um ad graeda, selja, auglysa, ollu er snuid uppi soluvoru, ekkert er heilagt. Thetta hryggir mig alveg jafn mikid og thad heillar mig. Eg se fridinn og natturuna a Islandi og I Faereyjum i hillingum. Eg er pinu hraedd um ad svona muni eg upplifa Paris lika ef eg kemst einhvern daginn thangad. Sudur Frakkland og Itolsku sveitirnar heilla miklu meira en thessi gedveiki nokkurn timann.

Thad er lika einhvern veginn eins og thad se ekkert eftir sem heitir personuleg upplifun. Allir eiga ad fara thad sama. Sja thad sama. Hlusta a thad sama i litlu heyrnatolunum sinum sem madur faer vid innganginn a hvert safnt.

Eg setti orugglega met i ad hlaupa gegnum Vatikanid. Tho eg hafi borgad helling til ad komast thar inn hafdi eg minnstu longun til ad vera thar lengi. Thvilik hruga af folki. Eg er farin ad skilja hvad afi meinti med ad thad hafi ekki verid neitt ad sja i Feneyjum nema Japani med myndavelar. Thannig er thad lika i Florence og Rom. Thessar borgir hryggja mig naestum jafn mikid og thaer heilla mig. Mer finnst fint ad hafa komid hingad. Olysanlegt ad hafa sed Sixtinsku Kapelluna..... EN eg hef enga longun til ad verja einhverjum vikum eda manudum herna. Andy aetlar ad syna okkur husid theirra upp vid Garda vatnid. Hlakka til ad sja hvort thad fangar mig meira. Hvort thar er fridur.

Eg kveiki a kerti fyrir ommu disu i ollum kirkjum sem eg kem inni. eg trui kannski ekki a gud en hun gerdi thad svo eg sendi henni kvedju eins oft og eg get. veit ekki hvernig hun hefdi tekid i nutima hugsunarhatt um trumal.

Bolgan er ad mestu ad hverfa ur bitunum en eg er buin ad vera med hita i dag og i gaer. Hef bara verid ein ad tvaelast um Rom thvi eg tek fimm skref og svimar... sofnadi i gomlum sporvagni adan (elska ad skoda mannlifid i almenningssamgongum i okunnri borg). Endadi a mjog ahugaverdum stad en fann sem betur fer sporvagn a lestarstodina aftur... var ad koma fra Pafanum. Eg er svo dofin af pillunum ad thad er rosalegt.... fekk samt utborgad i dag svo eg aetti ad geta farid ad kaupa mer kaffi og red bull. vei.

Timinn er ad verda buin og eg buin a thvi. Naeturlest til Milano i kvold og svo Feneyjar um helgina. Ef eg orka thad. Djok. Pant fara og tjalda a Sprengisandi um jolin.

ciao

» 11 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 07:44:28 / sirrysif

Skeeter syndrome

Modir nattura akvad ad hefna sin fyrir olaetin i mer medan eg var sem verst af hormonabullinu og let allar moskitoflugurnar i Florens bita mig. Frabaert. Eg lenti i thessu i lok agust lika thegar eg for nidra strond i DK og thad var 3 vikur ad jafna sig. Iris er su eina sem sa hvad thad var slaemt en thad var i alvoru talad hryllingur.
Nu bita thaer mig jafnt og thett og eg bolgna og bolgna og bolgna... Eg var haett ad geta notad haegri handlegginn i gaer eftir ferd nr.tvo i apotekid til ad fa sterkara krem. Framhandleggurinn a mer dofnadi bara upp og hekk eins og eitthvad okunnugt flykki sem hafdi aldrei tilheyrt minum likama. Tha var mer nu haett ad standa a sama og hringdi i Hronsu fraenku til ad spyrja hvort eg vaeri nokkud ad fara ad drepast af thessu. Hun vildi ekki meina thad en radlagdi mer ad fara til laeknis ef thetta lagast ekki a naestu tveim solarhringum.

Eg er svo buin ad vera ad lesa mer til um svona bit a netinu og komst ad thvi ad eg er med thad sem heitir Skeeter Syndrome. Sem er eitt form ofnaemis fyrir moskitobitum. Eg aetti ad fara og fa sprautu en thad gerist tha fyrst thegar eg er komin aftur til Milano. Eg vona bara ad thetta lagist af thessu ofurkremi. Eg aetla bara ad fara og kaupa mer frahrindandi krem lika svo thaer haetti ad bita mig. Og ofnaemistoflur... manni er alls stadar radlagt ad brydja thaer med til ad minnka ofnaemisvidbrogdin. Eg tok myndir af herlegheitunum en get ekki sett inn fyrr en eg er komin heim. Thid hafid tha eitthvad ad hlakka til. Vei.

Nuna erum vid ad fara i annan guided tour um borgina adur en vid forum med lest til Romar. Eg er farin ad plana mitt interrail. Hver vill med? Hormonatruflanir og ofnaemiskost herna megin.... einhver med gedhvarfasyki sem bydur sig fram?

En eg er lifandi. Afi, slakadu a. Eg heyri i ykkur i kvold thegar vid erum buin ad finna hostel i Rom.

ciao


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.10.2008 20:43:18 / sirrysif

Hostel Archi Rossi - Via Faenza

Heimilisfangid hja okkur ef einhver vill koma i heimsokn.
Florens er otruleg borg. Eg maeli med henni vid alla. Vid vorum komin hingad um 15 med lestinni fra Milano (sem var ofur) og roltum svo bara um borgina.
eg lagdi mig i einhverjum almenningsgardi medan ketill tritladi um... eg var bara svo sybbin og solin var svo heit.... hehe.

eg hef reyndar ekki verid serlega god vid thessa menn sem vilja allt fyrir mig gera... Ketil og Andy... eg attadi mig a thvi adan ad astaedan fyrir thvi er ad eg var ad byrja a pillunni aftur eftir rumt tveggja ara hle. allt sem heitir hormonar eru eitur og gud hjalpi theim sem thurfa ad vera nalaegt mer akkurat nuna... utskyrdi samt margt thegar eg fattadi thetta. buin ad vera oedlilega threytt og pirrud, alltaf thanin og oglatt... oj. daudi yfir allar p.pillur.

vandamalid er natturulega lika ad eg get ekki bara haett ad taka thetta nuna. gud veit hvad gerist tha. eg aetla ekki ad haetta a ad mer blaedi bara ut (eins og tharna um arid). svooo... madurinn verdur bara ad segja mer ad thegja. laeknirinn bara lofadi ad thad fylgdu thessar engar, engar aukaverkanir. right.

eg aetla ad reyna ad sofa ur mer hormonapirringinn og maeta galvosk i morgunmat a thessu lika fina hosteli kl.07 i fyrramalid.

buena notte


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.10.2008 16:08:36 / sirrysif

nei

engin kvitt engar frettir.
en eg er a lifi.

» 4 hafa sagt sína skoðun

10.10.2008 12:43:32 / sirrysif

it's all about the foooood

foreldrar andy's hafa bara spurt okkur um  mat.... mat a islandi, mat i danmorku... mat, mat, mat...

i gaerkvoldi forum vid ut ad borda med theim fedgum, their pontudu handa okkur... eg fekk villisvinakjot i sosu med maismjolsbudingi.... hjalp!
ketill at thad og eg thad sem hann fekk... sem var kartoflur og gul hrisgrjon. svo kom pizza... med ansjosum... thad munadi engu ad eg skiladi ollu aftur a bordid en afsakadi mig bara med thvi ad hitt hefdi verid alveg nog. ansjosur er eitthvad sem eg mun aldrei geta bordad. katli tokst med erfidleikum ad koma sinum skammti nidur.

svo skammadi gamli andy fyrir ad tala svo mikid ad eg hefdi ekki haft tima til ad borda. hahaha. right. naest panta eg sjalf. nu erum vid ad reyna ad panta mida til florens og romar. jibbi.

eg reyni ad hugsa ekki um gengid og bankajardafarirnar a islandi.

ciao.

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.10.2008 16:54:27 / sirrysif

Italskur is er betri en kynlif

djok.
samt alveg ortulega godur.

vid fengum otrulegar mottokur i gaerkvoldi og fimm retta maltid. raudvin med og oskrad a fullu yfir bordid. ferdin gekk vel en eg var threytt svo eg svaf i tolf tima. i gestaibudinni sem fjolskyldan hans andy's a, bara a haedinni fyrir nedan theirra ibud i sama husi. i down town milano... ekkert odyrasta stadsetningin.

buin ad sja Domo og Scala og rolta um borgina i dag. thetta er yndisleg borg. yndislegt land. hlakka til ad sja meira. bensinid er dyrara herna en heima og vegatollar alls stadar svo vid aetlum ekki ad leigja bil. bara taka lest til romar og napoli. andy aetlar svo ad dolast med okkur a sinum bil thegar hann er kominn i haustfri 16.okt.

veit ekki hvenaer eg kemst a net naest.
kvedja fra sodalegu indverjanetkaffi i milano.


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 09:29:43 / sirrysif

Af kreppu og harðfiski

Það liggur við að maður fái samviskubit yfir því að vera bara í Danaveldi og hafa það fínt meðan fólkið mitt heima hamstrar dósamat í Bónus og eldsneytið í landinu er að klárast. Ég fylgist með á mbl. Þar er hægt að horfa á fréttamyndbönd með ansi mörgum fréttum. Erum við ekkert að grínast með að í myndbandinu um Guðna og Pútín sjást minnst FIMM alþingismenn vera að skrifa sms... (?!) meðan þeir sitja í þingsal og eiga að vera að einbeita sér að því að bjarga landinu frá því að fara á kaf í kreppunni. Þeirra á meðal er Björn Bjarnason. Þetta var eins og að horfa yfir kennslustund hjá áttunda bekk í grunnskóla. Skamm! 

Ég hef svolitlar áhyggjur af peningum sem ég millifærði heim síðasta föstudag. Eða reyndi það réttara sagt. Þeir fóru út af danska reikningnum mínum en finnast nú hvergi heima þar sem öll viðskipti í erlendri mynt hafa verið fryst. Frábært. Ekki eins og ég kúki þessu. Ég vona að þeir birtist á endanum. 

Ég vil samt frekar hugsa um eitthvað skemmtilegt. Eins og pakkann sem kom frá tengdó í Færeyjum í gær. Í honum var ýmislegt... eins og handklæði og uppþvottabursti. Hahaha. Mömmur og ömmur eru greinilega alls staðar eins. Best að senda eins og einn uppþvottabursta (sem er "made in china" og hefur á sínum tíma pottþétt verið fluttur frá Danmörku til Færeyja) með pósti til Danmerkur... því þeir eru eflaust af skornum skammti þar. Það komu ótrúlegustu hlutir upp úr þessum pakka en það besta var klárlega ÍSLENSKUR HARÐFISKUR. Vei. 

Það var svo skemmtilegt skilningsleysi í samskiptunum á heimilinu þegar ég vildi fá harðfisk STRAX en nei.... hann átti að vera í kvöldmat. 
"Hvað meinarðu maður?! Harðfiskur er bara eins og nammi, til að narta í, það er ekkert heil máltíð."
"Jú, með eplum"
Ég náði að segja eitt langt haaaa áður en ég mundi að epli eru kartöflur. Sagði svo bara aftur ha. Svo eftir að hafa sýnt meiri þolinmæði en ég vissi að ég ætti til (mig langaði svo ólýsanlega í harðfisk strax) fékk ég leyfi til að skammta mér á disk... harðfisk, smjör og soðnar kartöflur. Það þurfti bara einn bita og ég var seld. Hví gera Íslendingar þetta ekki? Þetta er ótrúlega gott. 
Kartöflur. Good. 
Smjör. Goood. 
Harðfiskur. Gooooood. 
Saman smakkast þetta alveg unaðslega. Skora á alla hafa harðfisk í kvöldmat. 

Ég prófaði líka að setja hummus á harðfiskinn en það var ekki jafn gott. 
Ég heimtaði náttúrulega að versla í matinn því ég var ekki að kaupa það að maður gæti bara haft harðfisk í kvöldmatinn. Svo þetta ljúfmenni lét sig hafa það að smakka sushi, lífrænt hummus, lífrænan cheddar ost og eina svarta ólívu áður en hann fór að háma í sig færeyska matinn sinn. Svo var að sjálfsögðu lífrænt öl með og lífrænn ís í eftirrétt. Svo gott, svo gott. Smá kveðjumáltíð. 

Því nú stendur taskan við útidyrnar og ég er á leiðinni til Ítalíu. Mílanó fyrst, svo bílaleigubíll í nokkra daga og Mílanó aftur. Ég flýg til baka til Kbh 21.okt. Bölmóður verður eftir þar og flýgur svo til Íslands frá London 23.des.  

Ég veit ekki hversu mikið ég kemst á netið úti en reyni að láta vita af mér reglulega. Ég verð með íslenska númerið mitt, skil það danska eftir hérna heima. 

Farið vel með ykkur, hvar sem þið eruð. Ísland - Ástralía - Noregur - England - Svíþjóð - Danmörk. 
Kossar. 

 

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 13:22:01 / sirrysif

Ótengt

Sendi kossa og knús og allt sem því fylgir til Auðar systur og Hinriks frænda sem bæði eru 16 ára í dag. Þessar litlu mýs. Kynlíf, alkóhól og tóbak er bannað í fjögur ár í viðbót! Munið það. Elska ykkur. Kram.

Ótengt langar mig að skrifa þetta: 

Everything passes and vanishes;
Everything leaves its trace; 
And often you see in a footstep
What you could not see a in a face. 

     William Allingham

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 10:45:09 / sirrysif

Fréttz

Hér er allt við það sama... ég les og laga til, ryksuga og þvæ þvott. 

Það sem ég hef að segja síðan síðast er að ég fór til augnlæknis sem skammaði mig fyrir að eiga villta fortíð - linsulega séð. Svo hló hann eins og fífl. Ég fór í þvílíka skönnun og ég veit ekki hvað og hvað til að vita hvort (og hvernig þá) ég mætti vera með linsur. Hann átti ekki orð yfir að þetta væri ekki gert á Íslandi... ég hefði auðveldlega getað skemmt í mér augun. Hefði greinilega einhvern tímann verið með linsur sem hefðu ekki verið nógu góðar og því komin með einhverja prótínklasamyndun í hvítuna í auganu. Hmm... Hann sagði samt að ef ég lofaði að nota réttar og góðar linsur héðan í frá myndi þetta ekki há mér og ekki versna. 

Þegar talið barst að gleraugunum kom annað hljóð í stokkinn hjá mér... Ég hef aldrei þolað gleraugun mín. Þau voru líka úrelt, þarf sterkari. Hann aðstoðaði mig við að finna gleraugu sem ég mun vonandi geta sætt mig við að ganga með. Þá er ég töff og augun fá frí frá linsunum. Fæ þau samt bara þegar ég kem aftur frá Ítalíu. Ég var svo ánægð með þetta að ég fattaði í gærkvöldi að ég skildi gömlu gleraugun mín óvart eftir í búðinni. Úbbs. Ohh well. 

Í gærkvöldi sótti ég svo síðhærðan Bölmóð á flugvöllinn. Þar með er þriggja mánaða bakpokaferðalagið hans um Evrópu byrjað. Hann er fallinn í ómenninguna og farinn að skrifa á veraldarvefinn.  Kýs að kalla sig Birting en það er öfugmæli í minni bók svo ég held mig við Bölmóð. 

Í dag ætlum við að lestast upp til Helsingør  og svo sleppi ég honum yfir til Svíþjóðar þaðan. Ítalía bíður okkar svo á miðvikudaginn. Woohoo.

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 16:51:33 / sirrysif

o jæja

nú virkar gamla danska númerið mitt aftur. 
það gengur allt svo hægt í danaveldi.... þeir voru bara ekki búnir að fá tilkynningu um að ég hefði borgað síðasta reikning... sem var 23.sept. hversu tregt getur kerfið þeirra verið? hmm...?

þið takið lífinu með ró bara...

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 08:16:21 / sirrysif

Með allt á hreinu

Jæja, ég hef ekki komist í að ræða við Hr.Sonofon en næ því vonandi í dag. Annars verður þetta vandamál bara að bíða þar til ég kem aftur frá Ítalíu. Oh well. Ég er með varanúmer og varasíma, danskt frelsisnúmer og síma eins og mömmu. Ég er líka búin að hlaða og kveikja á íslenska símanum mínum svo það er hægt að senda sms og hringja í hann. Ég fer með hann til Ítalíu. Endilega ekki leggja inná hann mamma. Meðan ég er hérna úti keyrir hann bara á "frelsi í útlöndum" og það fer sjálfkrafa út af Visa í hverjum mánuði. Svo við eigum bara á hættu að inneignin fyrnist ef þú leggur inn á hann. 

Íslenska númerið mitt er: 00354-848-0731
Danska tímabundna er: 00 45  27 42 76 77

Ég er að fara í augnskoðun svo ég fái að kaupa mér linsur hérna... og hugsanlega ný gleraugu á einhverjum tímapunkti. 

Ég er líka komin í próf með að millifæra peninga milli landa ef einhvern vantar aðstoð. Hversu yndislegt fyrirbæri eru netbankar/heimabankar. 

Góðan dag, ég er hlaupin

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.10.2008 22:06:10 / sirrysif

Just so you know...

Hr.Sonofon er af einhverjum ástæðum búinn að loka á símann minn svo ég get hvorki hringt né tekið við símtölum. Það sama á við um sms. Ef eitthvað er má senda mér mail eða skilaboð á facebook. Ég athuga það örugglega jafn oft og ég kíki á símann minn yfir daginn. 

Átti yndislegan dag í gær. (Fyrir utan að geta ekki leyst út lyf í apótekinu því þar var bara hægt að borga með Dankorti eða peningum. Ég átti hvorugt. Piss.)
Ég fékk pakka að heiman með fullt af íslensku lesefni og suðusúkkulaði! Fæf. 
Lærði svo og las blöðin mín til skiptis meðan ég beið eftir að vera boðið að setjast til borðs. Fékk ljúffengan kvöldmat og suðusúkkulaði í eftirmat. Smá tilefni til að fagna í gær, skálað, kysstst og horft á Babe. Óendanlega fyndin kvikmynd. Mæli með henni. 

Fékk líka símtal í gær frá vinnunni þess efnis að það hefði GLEYMST að skrifa mig á vaktirnar mínar þessa vikuna svo ég þyrfti ekkert að mæta. Ha?! Fílepanikk í nokkrar mínútur því ég má ekki beint missa þrjár vikur úr vinnu. Hvar ætti ég þá að búa í nóvember ef enginn er leigupeningurinn? Endaði samt með því að þær leystu úr þessari samskiptaflækju sinni þarna niðrá skrifstofu hjá sér. Eins gott því þetta var, fjandinn hafi það, ekki mér að kenna. 

Mig er farið að gruna að sambýliskona mín sé á lengsta túr sögunnar. Hún hefur allt á hornum sér... er reyndar með mínar hugmyndir um að henni líki illa að vera ekki lengur sú eina sem fær næturgest. Hún stokkar sína þrjá en ég er alveg fullkomlega sátt við minn eina. Það hlýtur að vera stressandi að eiga svona marga kærasta. Hún fer nú samt alveg að losna við mig til Ítalíu í næstum tvær vikur svo hún verður vonandi farin að draga andann eðlilega þegar ég kem aftur. 

Ég hef samt aldrei saknað Eggertsgötunnar meir en síðustu vikuna. Langar bara að búa með strák aftur... stelpur væla svo mikið. 

» 8 hafa sagt sína skoðun


Klukkan