Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt

Aðgát skal höfð í nærveru sálar

03.02.2010 15:49:32 / sirrysif

Og þegar þú komst inn í líf mitt breyttist ég

Ég lenti í mjög skemmtilegri lífsreynslu áðan. Ég var í hópastarfi sem leiddist út í spjall þegar við vorum búin að leysa verkefni dagsins, svona eins og gengur og gerist. Við spjölluðum um verkefnið, námið, okkur sjálf og ástæður þess að við erum að læra einmitt þetta. Félagsráðgjöf er ungt fag í stöðugri þróun, fræðigreinin er sprottin af félags- og sálfræði, er eins konar samþætting í verki á þessum tveim fögum. Í þessum hóp í morgun sat ég allt í einu með fólki sem hefur verið að upplifa nákvæmlega það sama og ég síðan ég byrjaði í haust. Mikið á haustönninni og enn meira í námskeiðunum núna.

Öll erum við komplexa-börn sem eigum varla orð yfir því að það séu til heilu fjöllin af bókum um fjölskyldutengsl, hegðunarmynstur og ég veit ekki hvað og hvað þar sem fræðimenn skrifa um fólk eins og okkur. Ég held stundum að sumir kaflarnir hljóti að vera merktir mér. Að hafa alltaf fundist maður vera gjörsamlega á skjön við allt og alla, svo gjörsamlega út úr kú að þegar kennari lýsti því yfir að ég væri nú sennilega klofinn persónuleiki tók ég því bara sem ágætis skýringu.... Og vera svo smátt og smátt að komast að því núna að það eru til fleiri en ein og fleiri en tvær fræðigreinar um svona hluti.... Getur einhver sagt léttir? Undrun. Nei bíddu ha? Má þetta? Og ég sem hélt alltaf að ég væri bara meingallað eintak. Slysabarn með vesen. Heimsins lengstu timburmenn. Nei ókei... Ég er búin að vera að hugsa þetta í smá tíma en hef ekki kunnað við að segja neitt fyrr en þau fóru að tala um þetta.

Það er lögð mikil áhersla á að það verði enginn virkilega góður félagsráðgjafi nema skoða sjálfan til gaumgæfilega fyrst. Ég er svo sannarlega að því og það var alveg tímabært en með allar þessar upplýsingar að vopni verður það eiginlega bara skemmtilegt.

Ég verð að fara að læra, halda áfram að lesa mér til um líkamlegt ofbeldi á börnum. Sáum mjög óhuggulegar myndir í fyrirlestrinum í dag. Teknar á Barnaspítala Hringsins. Ofbeldi gegn börnum er ólöglegt, tilkynningaskyldan nær til allra og já, flengingar og kinnhestar eru líka ofbeldi.

Hlessa Skessa out.

Siggeir skrifaði
Það er gott að þú ert farin að vinna í þínum málum, því það er ekkert launungamál að þú hefur ferðast með alltof mikinn farangur alltof lengi. Kominn tími til að skilja hann eftir við hurðina og ganga inní gleðina (ok full dramatísk lýsing hjá mér í lokin kannski).

Svo er það líka sagt að enginn geta elskað aðra persónu nema að læra að elska sjálfan sig fyrst. Ég held að þú sért á góðri leið með að verða ástfangin af sjálfri þér, og þá kemur hitt að sjálfu sér.
sirrysif skrifaði
Rétt. Tabú eru púkó.
Ég stefni á að læra að ferðast bara með handfarangur ;)
Hannes K skrifaði
farsæld er ferðalag.
Hannes K skrifaði
p.s.: með dýpri pælingum.



p.s2.: "Á diskóbar, ég dansaði frá sirka tólf til sjö".
sirrysif skrifaði
rétt Hannes. og rétt. þetta blogg væri náttúrulega löngu dáið ef ekki værir fyrir þig og kvittin þín.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan